Færsluflokkur: Bloggar
2.10.2012 | 21:25
Vetrar dagskrá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2012 | 18:46
Haustdagskrá
Þá er orðir frekar haustlegt, hlaupajakkinn tekinn fram í gær í fyrsta skipti síðan snemma í vor. Haust dagskráin verður með þessu hefðbundna sniði eins og verið hefur undanfarna mánuði, sjá hér til vinstri á síðunni.
Hópurinn notaði tæfifætið og kynnti sig og starfið í gær á markaðnum sem haldinn var í Ingunnarskóla á hverfisdeginum "Í holtinu heima", tókst það að okkar mati með miklum ágætum og erum við að vona að fjölgi í hópnum á næstunni. Best er fyrir þá sem koma nýjir inn að mæta fyrst á þriðjudegi eða fimmtudegi þegar Ómar þjálfari er á svæðinu. En nýtt fólk er alltaf velkomið og því tekið opnum örmum.
Skipulag vetrarins er ekki alveg klárt, er í vinnslu :) Hlakka til að mæta á æfingar með ykkur öllum. kv. Ásdís.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2012 | 21:46
Sumar dagskrá.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2012 | 22:34
Árangur og framfarir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2012 | 23:00
Sól og alltaf blíða :)
Sumarið í allri sinni fegurð gladdi okkur síðari hluta liðinnar viku. Á fimmtudaginn s.l. tóku nokkrir eldsprækir félagar úr hópnum þátt í miðnæturhlaupinu og allir voru að setja met, sumir að slá gömul met og aðrir að setja sín fyrstu. gott var að hafa félaga á hliðarlínunni við markið og hvetja og klappa fyrir okkur sem hlupum. Næsta vika verður skemmtileg eins og allar hinar, hlakka til að vera með ykkur.
Svo er best að minna ykkur sem ekki eruð búin að borga Fram fyrir núverandi tímabil sem er júní til og með september að drífa í því, hafið samband við Daða hjá Fram ef ykkur vantar upplýsingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2012 | 23:11
Ganga, skokka, hlaupa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2012 | 17:14
Sumar, sumar, sumar og sól.
Allir að syngja með. Sjáið æfinga listann hér til vinstri. Ómar kemur beint upp í Ingunnarskóla á þriðjudögum og fimmtudögum kl: 17:30 og æfingin hefst strax þá.
Margt var í gangi í síðustu viku og um helgina, tveir úr hópnum fóru í 7 tinda hlaupið og tóku einn og þrjá tinda, einn úr hópnum var að keppa á landsmóti UMFÍ 50+ og hinir voru örugglega allir að gera eitthvað skemmtilegt líka. Hittumst öll kát og hress og hlaupum, skokkum og göngum saman það er svo gaman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2012 | 21:35
Ný afingatafla hér til hliðar.
Sjá nýa tímatöflu hér til hliðar.
Fimmtudagsæfingin núna 7. júní hefst við Ingunnarskóla kl: 17:30 og Ómar mætir þá strax. Erum að hugsa um að stytta tímann sem fer í æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum og Ómar mætir þá kl: 17:30 og hefur æfinguna þá.
Bloggar | Breytt 5.6.2012 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2012 | 22:58
Breyting á tíma á fimmtudaginn 31. MAÍ.

Bloggar | Breytt 30.5.2012 kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.5.2012 | 16:51
Maí - gleði. 23. maí kl: 17:30
Almenningsíþróttadeild Fram, sem erum við Skokkhópurinn og leikfinihópurinn hennar jónu Hildar í Safamýri, ætlum að standa fyrir Maí - gleði, miðvikudaginn 23. Hittumst í Úlfarsárdalnum við aðstöðu Fram kl: 17:30 og göngum á Úlfarsfell, á eftir getum við grillað saman en það verður hver að koma með fyrir sig á grillið, endilega koma og hafa gaman saman. Skrifið ykkur endilega hér fyrir neðan sem komist með.
Hætt við vegna dræmrar þáttöku, reynum aftur síðar. :(
Bloggar | Breytt 23.5.2012 kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)